Viðskipti
| Morgunblaðið
| 17.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:01
Erlendar skuldir hins opinbera yfir 500 ma.kr.
Erlendar skuldir hins opinbera nema yfir 500 milljörðum króna, samkvæmt tölum frá Seðlabankanum. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá fréttatilkynningu fjármálaráðherra um að hreinar erlendar skuldir ríkisins næmu 75 milljörðum króna, en samkvæmt því væru þær 5% af vergri landsframleiðslu.
Í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins segir, að erlendar skuldir ríkissjóðs nemi 356 milljörðum króna, en á móti komi gjaldeyrisvaraforði Seðlabanka Íslands, sem sé 281 milljarður. Hrein erlend skuld ríkisins sé því 75 milljarðar, sem fyrr segir.
Þegar tölur frá Seðlabankanum eru skoðaðar kemur í ljós, að hrein erlend skuld hins opinbera, þ.e. ríkissjóðs og annarra opinberra aðila sem ríkið ber beint eða óbeint ábyrgð á, nemur 658 milljörðum króna. Þetta eru erlendar skuldir umfram erlendar eignir.Sjá nánar ítarlega umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















