Viðskipti
| AFP
| 17.3.2010
| 9:18
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar
Olíuborpallur Statoil á Sleipnissvæðinu í Norðursjó. mbl.is/statoil
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði í morgun þar sem þess er vænst að samtök helstu olíuríkja heims, OPEC, muni ekki gera breytingar á olíuframleiðslu í aðildarríkjum samtakanna. Eins eru væntingar um að eldsneytisbirgðir hafi minnkað í Bandaríkjunum í liðinni viku.
Verð á hráolíu til afhendingar í apríl hækkaði um 39 sent á NYMEX markaðnum í New York í morgun og er 82,09 dalir tunnan.
Í Lundúnum hefur verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í maí hækkað um 39 sent í morgun og er 80,92 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















