Hert eftirlit skilar árangri

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri á fundinum í morgun stækka

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri á fundinum í morgun mbl.is/Ómar Óskarsson

Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að eftirlit hafi verið stóreflt hjá Seðlabankanum og það sé meðal skýringa á því að gjaldeyrishöftin haldi betur. Eins það að reglur voru hertar og frá þeim tíma hafi gengið styrkst án þess að Seðlabankinn hafi gripið inn á gjaldeyrismarkaði.

Telur að ríkið komist hjá greiðslufalli

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að íslenska ríkið geti komist hjá greiðslufalli hvort heldur sem áætlanir um lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og hinum norrænu ríkjunum, verða að raunveruleika eða að semja þarf nýja efnahagsáætlun. Hann segir að það verði mjög erfitt en mögulegt. 

Íslenska ríkið þarf að greiða um 1,5 milljarð evra, rúmlega 159 milljarða króna, af lánum á næsta ári, að sögn seðlabankastjóra.

Miðað við hver gjaldeyrisforði Seðlabankans er og að bankinn telji það ákaflega líklegt að hann geti selt af gjaldeyriseignum sínum áður en greiða þarf af þessum lánum 2011, þá getur bankinn greitt af þessum lánum og forðað íslenska ríkinu frá greiðslufalli. 

Már nefndi þar til sögunnar þær kröfur sem Seðlabankinn yfirtók vegna falls íslensku bankanna árið 2008, meðal annars lán sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi upp á 500 milljónir evra í byrjun október 2008.

Hann segir að þetta þýði hins vegar að gjaldeyrisforðinn verður hættulega lítill  og lítið megi út af bera til þess að Ísland lendi í vandræðum.

Seðlabankastjóri segir að  í öryggisskyni, ef þessar aðstæður koma upp, þá myndi Seðlabankinn kaupa  gjaldeyri og bætti við að vonandi verði hægt að forðast það að þessar aðstæður komi ekki upp og að afskaplega auðvelt sé að komast hjá því að lenda í þessum aðstæðum.

Aðspurður um áhrif af synjun forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, á undirritun laga um Icesave, þá skuldatryggingaálagið hækkað  mikið í kjölfar af synjun forsetans en það lækkaði eftir að fréttir bárust af viðræðum um Icesave. Svo virðist sem markaðir leggi mest upp úr því að málist leysist, ekki endilega um hvað er samið, að sögn Más og segir að það sé hins vegar mjög slæmt ef ríki getur ekki endurfjármagnað sig.

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson, aðstoðarbankastjóri

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson, aðstoðarbankastjóri mbl.is/Kristinn Ingvarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Olíuverð hækkar hressilega

10:11 Verð á olíu hefur hækkað á mörkuðum í dag í kjölfar samkomulags á gríska þinginu í gærkvöldi um að grípa til frekari niðurskurðaraðgerða. Meira »

Hækkun í Evrópu

08:44 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Helga Björk til Marel

Helga Björk Eiríksdóttir
10:21 Helga Björk Eiríksdóttir hefur verið ráðin fjárfesta- og almannatengill hjá Marel hf. og tekur við starfinu af Jóni Inga Herbertssyni, sem nú hefur látið af störfum. Meira »

Hækkun í Asíu

07:03 Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Grunaðir um skattsvik

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.
Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

11.2. Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

Slæm staða Olympus

07:10 Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember. Meira »

Evran hækkar í Asíu

06:29 Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Meira »

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Arion banki.
í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
10.2. Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
10.2. Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

10.2. Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
10.2. Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir