Viðskipti
| Morgunblaðið
| 17.3.2010
| 5:30
| Uppfært
5:58
Krafa ríkisins á SÍ lækkar og eignir færðar
Krafa íslenska ríkisins á Seðlabanka Íslands hefur lækkað í 159 milljarða króna samkvæmt Markaðsfréttum Lánamála ríkisins.
Í síðasta mánuði stóð sami liður í 294 milljörðum króna. Krafan er tilkomin vegna yfirtöku íslenska ríkisins á eignum og veðum sem voru á bókum Seðlabanka Íslands í kjölfar bankahrunsins í október 2008.
Samkvæmt upplýsingum frá Lánamálum ríkisins hafa eignir upp á 135 milljarða króna verið færðar undir nýstofnað eignaumsýslufélag Seðlabanka Íslands. Innlendar skuldir ríkissjóðs hafa lækkað til samræmis. Meðal þeirra eigna sem voru færðar er veð í danska bankanum FIH, upp á 86 milljarða króna.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















