Viðskipti
| mbl
| 17.3.2010
| 12:35
Lífleg viðskipti með ríkisbréf
Greining Íslandsbanka segir viðbrögð á skuldabréfa markaði við stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í takt við það sem vænta mátti, enda var vaxtalækkunin öllu ríflegri en ýmsir höfðu búist við. Þannig hafa viðskipti með ríkisbréf verið með líflegara móti í morgun en öllu meiri ró ríkir yfir verðtryggðum bréfum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















