Meinaður aðgangur að kröfuhafafundi Fons
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurði G. Guðjónssyni lögmanni var meinaður aðgangur að kröfuhafafundi Fons hf. í dag. Öryggisverðir vísuðu Sigurði frá þegar hann ætlaði að sækja fundinn. Á vef DV er haft eftir honum að ástæðan væri líklega sú að þeir teldu hann vera búinn að greiða kröfuna.
Forsaga málsins er sú að Sigurður sem er fyrrverandi stjórnarformaður Fons og lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, hafði keypt 203.000 króna kröfu af Skeljungi sem hafði lýst henni í þrotabú Fons, til að komast í hóp kröfuhafa.
Þrotabú Fons hefur krafist riftunar á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs. Með kaupum sínum á kröfu Skeljungs komst Sigurður í hóp kröfuhafa og var þar með kominn með aðgöngumiða að fundum þeirra. Hann mætti því á óformlegan fund kröfuhafa með kröfuna.
Skiptastjóra Fons Óskari Sigurðssyni þótti sú tilhögun óheppileg í ljósi þess að ræða ætti riftunarmál, þar á meðal gegn Jóni Ásgeiri. Skiptastjóri brá því á það óvenjulega ráð að bjóða að allar kröfur undir 500.000 króna yrðu greiddar. Tillagan var samþykkt af öllum almennum kröfuhöfum sem þýddi að Sigurður var fallinn úr hópi kröfuhafa og hafði ekki lengur rétt til að sitja skiptafundi.
Sigurður neitaði að taka við greiðslu svo málið var leyst með geymslugreiðslu. Sigurður lét svo reyna á það í dag hvort hann væri í hópi kröfuhafa með fyrrgreindum árangri.
Ekki hefur náðst tal af Sigurði vegna málsins.



















