Mikið tap hjá Cimber Sterling
Mikið tap var hjá danska lággjaldaflugfélaginu Cimber Sterling á þriðja ársfjórðungi rekstrarárs félagsins, sem skráð var í dönsku kauphöllina í desember.
Á tímabilinu frá byrjun nóvember til loka janúar nam tapið 125,2 milljónum danskra króna, um 2,9 milljörðum íslenskra króna, og er þetta mesti taprekstur á einum ársfjórðungi í sögu félagsins.
Samtals nemur tap á rekstri félagsins fyrstu þrjá fjórðunga rekstrarársins 178,1 milljón danskra króna fyrir skatta.
Stjórn Cimber Sterling segist þó enn standa við þá áætlun, að rekstartap á árinu öllu verði 200-220 milljónir danskra króna. Félagið áætlar að á næsta rekstarári verði reksturinn í járnum. Félagið hefur tvívegis þurft að lækka afkomuspá sína frá því það var skráð á markaði, fjárfestum til lítillar ánægju.
Flugfélagið er með höfuðstöðvar í Sønderborg syðst á Jótlandi. Félagið hét áður Cimber Air en keypti hluta af rekstri og flugvélar af þrotabúi lággjaldafélagsins Sterling á síðasta ári og breytti í kjölfarið nafninu í Cimber Sterling.



















