Niðurstaða um lánshæfiseinkunn í lok apríl
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's segir í nýrri skýrslu um Íbúðalánasjóð að niðurstaða um lánshæfiseinkunn sjóðsins og íslenska ríkisins fáist væntanleg í lok apríl. Bæði ríkissjóður og Íbúðalánasjóður eru á athugunarlista hjá S&P með neikvæðum horfum.
Í skýrslunni kemur fram, að búist sé við niðurstöðu í apríllok þegar það hefur skýrst til hvaða ráðstafana íslensk stjórnvöld muni grípa til að auka traust fjárfesta á skuldabréfum Íbúðalánasjóðs. Verði skuldabréf íslenska ríkisins fjarlægð af athugunarlista og núverandi einkunn þess staðfest verði Íbúðalánasjóður væntanlega einnig fjarlægður af athugunarlistanum.
Verði lánshæfiseinkunn ríkisins hins vegar lækkuð eða að talið verði að frekar hafi fjarað undan lánshæfi Íbúðalánasjóðs kunni lánshæfiseinkunn sjóðsins að lækka um einn flokk.
Lánshæfiseinkun bæði ríkissjóðs og Íbúðarlánasjóðs er, BBB-/A-3 fyrir erlendar skuldbindingar. Einkunn ríkisins er BBB+ og A-2 í íslenskum krónum en Íbúðalánasjóðs BBB/A-3.



















