Olíumálaráðherrar OPEC á fundi í Vín í morgun.
Reuters
Olíumálaráðherrar OPEC-ríkjanna ákváðu á fundi í Vínarborg í dag að halda óbreyttri framleiðslu. AFP fréttastofan hefur þetta eftir heimildarmanni, sem sat fundinn í morgun.
10:33
Ítalska ríkið tók tilboðum fyrir 12 milljarða evra í skuldabréfaútboði sem lauk í dag. Ávöxtunarkrafan á tólf mánaða skuldabréf er 2,230% samanborið við 2,735% í sambærilegu útboði í síðasta mánuði.
Meira
10:30
Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 3,9% í Slóvakíu í janúar sem er talsvert minni verðbólga heldur en í desember er verðbólgan var 4,4%.
Meira
10:21
Helga Björk Eiríksdóttir hefur verið ráðin fjárfesta- og almannatengill hjá Marel hf. og tekur við starfinu af Jóni Inga Herbertssyni, sem nú hefur látið af störfum.
Meira
08:44
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar.
Meira
07:03
Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar.
Meira
Í gær, 14:37
Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum.
Meira
07:10
Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember.
Meira
06:29
Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka.
Meira
11.2.
Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter.
Meira
10.2.
Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin.
Meira
í fyrradag
Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins.
Meira
10.2.
Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna.
Meira
10.2.
Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta.
Meira
Ogilvy um prentauglýsingar. David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingumMeira