Pfizer leggur fram formlegt tilboð í dag
Samkvæmt heimildum Reuters hefur Actavis boðið hæst í Ratiopharm hingað til eða um 3 milljarða evra að meðtöldum skuldum.
Ef tilboðið verður svo hátt þá er það stærsta yfirtaka á samheitalyfjafyrirtæki síðan Teva keytpi Barr í júlí 2008 á 7,5 milljarða dala.
Þegar Actavis hélt kynningu fyrir stjórnendur Ratiopharm fyrr í mánuðinum þá kom fram að markmið Deutsche Bank, sem er helsti lánadrottinn Actavis, er að sameina Actavis Group og Ratiopharm Group í eitt fyrirtæki, sem verður að mestu skuldlaust og setja það síðan á hlutabréfamarkað eftir um það bil fimm ár.
Dow Jones fréttaveitan hafði nýverið eftir heimildarmönnum, sem sagðir eru þekkja til, að um 50 stjórnendur Ratiopharm hafi verið viðstaddir kynninguna í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Ulm í Þýskalandi. Deutsche Bank er helsti lánardrottinn bæði Actavis og Ratiopharm.
Eigandi Ratiopharm er Merckle fjölskyldan þýska og á að selja
Ratiopharm til að grynnka á skuldum eignarhaldsfélags fjölskyldunnar.
Fjölskyldufaðirinn, Adolf Merckle, framdi sjálfsvíg í janúar í fyrra
eftir að
hafa tapað mjög á hruni hlutabréfa.



















