Viðskipti
| AFP
| 17.3.2010
| 8:08
Réttarhöld yfir starfsmönnum Rio Tinto
Framkvæmdastjóri Rio Tinto í Sjanghaí, Stern Hu, verður leiddur fyrir dómara á mánudag í Kína en hann er ákærður fyrir iðnaðarnjósnir og að hafa þegið mútur.
Segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Kína að auk Hu verði réttað yfir öðrum starfsmönnum móðurfélags álversins í Straumsvík í Sjanghaí á mánudag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















