Viðskipti
| mbl
| 18.3.2010
| 7:55
Dow Jones ekki hærri frá október 2008
Hlutabréf hafa hækkað í verði í kauphöllinni á Wall Street undanfarið og lokagildi Dow Jones hlutabréfavísitölunnar í gærkvöldi hefur ekki verið hærra frá því í október 2008 eða þegar lausafjárkreppan skall á með fullum þunga.
Vísitalan er nú 10.733 stig og hækkaði um 0,5% í gær. Var það sjöundi dagurinn í röð sem vísitalan hækkaði. Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,47% og er 2389 stig.
Það var einkum ný skýrsla um framleiðsluverð, sem gladdi fjárfesta en þar kom fram að það lækkaði um 0,6% í febrúar miðað við janúar. Þetta þykir benda til þess, að verðbólga muni ekki láta á sér kræla á næstunni og því geti bandaríski seðlabankinn áfram haft stýrivexti mjög lága.
Það félag sem hækkaði einna mest í gær var álfélagið Alcoa, um 4,78%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















