Viðskipti
| AFP
| 18.3.2010
| 8:29
Efast um að batinn sé nægur
Stjórnarformaður BHP Billiton, stærsta námafyrirtækis heims, Don Argus, efast um að efnahagur heimsins sé að rétta úr kútnum á ný eftir lægðina sem ríkt hefur undanfarin tvö ár. Í ljós eigi eftir að koma áhrifin af því að stjórnvöld margra ríkja hætta að dæla fjármagni út í hagkerfi ríkja sinna.
Argus segist sannfærður um að félagið og Rio Tinto, móðurfélag álversins í Straumsvík, eigi eftir að ljúka við gerð samkomulags um samvinnu við vinnslu á járni og málmgrýti þrátt fyrir óvissu á fjármálamörkuðum.
Argus er að láta af störfum sem stjórnarformaður og sagði í síðustu ársskýrslu sinni að enn verði að sýna aðgát enda sýni nýleg skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hve mikið bil er að myndast á milli hagkerfa þróaðra ríkja og þróunarlanda...
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















