Ekki við Seðlabankann að sakast
Eiríkur Guðnason, fyrrverandi seðlabankastjóri, segir í grein í Viðskiptablaðinu að það sé gersamlega út í hött að beina spjótum að Seðlabankanum hafi einhverjir bankar ákveðið að misnota aðstöðu sína á gjaldeyrismarkaði og jafnvel fara á svig við einhverjar reglur.
Eiríkur fjallar í greininni um umfjöllun Kastljóss Sjónvarpsins og fréttastofu Ríkisútvarpsins um skýrslu, sem Bjarni Kristjánsson, gjaldeyrismiðlari, hefur gert um gjaldeyrisviðskipti bankanna fyrir hrun. Eiríkur tekur fram að hann hafi ekki séð skýrsluna enda skiljist honum, að hún sé boðin til sölu fyrir fjárhæð sem sé langt fyrir ofan minn kaupmátt.
Eiríkur segir það meðal annars mikinn misskilning, að Seðlabankinn hafi brugðist eftirlitsskyldu sinni með gjaldeyrisviðskiptum bankanna. Bankinn hafi fylgst grannt með gjaldeyrisjöfnuði fjármálafyrirtækja, m.a. með því að afla daglegra talna frá þeim sem aðild áttu að millibankamarkaði með gjaldeyri.
Sé það rétt að staðan hafi farið langt út fyrir veittar heimildir, eins og ætla megi að gerst hafi samkvæmt umfjöllun RÚV um skýrsluna, hafi rangar tölur verið sendar Seðlabankanum frá þeim sem önnuðust upplýsingakerfi, skýrslugerð og skýrslugjöf bankanna um gjaldeyrismál. Það er rannsóknarefni út af fyrir sig, segir Eiríkur.



















