Góð afkoma Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

Góð afkoma varð hjá Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. í fyrra. stækka

Góð afkoma varð hjá Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. í fyrra. mbl.is/hag

Ágæt afkoma var hjá Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. á síðasta ári. Tekjuafgangur af rekstri sjóðsins var 1.656 m.kr. á móti 1.225 m.kr. árið áður. Háir vextir á innlendum markaði sem og mikil verðbólga skýra þessa góðu afkomu en eignir sem samsvara eigin fé sjóðsins eru að mestu bundnar í verðtryggðum útlánum. Ávöxtun á lausu fé var einnig framúrskarandi, en það var svo til allt varðveitt í Seðlabankanum.

Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á árinu 2009 voru 8.421 m.kr. miðað við 15.505 m.kr. á fyrra ári.

Sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og engin vanskil voru í árslok 2009. Sveitarfélögin bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins, en tryggingar fyrir útlánum hans eru í tekjum sveitarfélaga skv. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr. einnig reglugerð um tryggingar Lánasjóðs sveitarfélaga í tekjum sveitarfélags nr. 123/2006.

Eigið fé í árslok 2009 var 12.930 m.kr. á móti 11.273 m.kr. árið áður. Vegið eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í árslok 2009 67% en var 57% í árslok 2008, en þarf að vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Þörf á 33.500 nýjum þotum

10:42 Flugfélög heimsins þurfa á 33.500 nýjum þotum að halda á næstu tveimur áratugum og væntanlega verður eftirspurnin mest í Asíu. Meira »

Lægri vextir í útboði

10:33 Ítalska ríkið tók tilboðum fyrir 12 milljarða evra í skuldabréfaútboði sem lauk í dag. Ávöxtunarkrafan á tólf mánaða skuldabréf er 2,230% samanborið við 2,735% í sambærilegu útboði í síðasta mánuði. Meira »

Dregur úr verðbólgu í Slóvakíu

10:30 Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 3,9% í Slóvakíu í janúar sem er talsvert minni verðbólga heldur en í desember er verðbólgan var 4,4%. Meira »

Olíuverð hækkar hressilega

10:11 Verð á olíu hefur hækkað á mörkuðum í dag í kjölfar samkomulags á gríska þinginu í gærkvöldi um að grípa til frekari niðurskurðaraðgerða. Meira »

Slæm staða Olympus

07:10 Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember. Meira »

Evran hækkar í Asíu

06:29 Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Meira »

Helga Björk til Marel

Helga Björk Eiríksdóttir
10:21 Helga Björk Eiríksdóttir hefur verið ráðin fjárfesta- og almannatengill hjá Marel hf. og tekur við starfinu af Jóni Inga Herbertssyni, sem nú hefur látið af störfum. Meira »

Hækkun í Evrópu

08:44 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Hækkun í Asíu

07:03 Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Arion banki.
í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Grunaðir um skattsvik

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.
Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

11.2. Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
10.2. Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir