Viðskipti
| mbl
| 18.3.2010
| 18:05
Hertz kaupir bíla af Heklu
Undirritaður hefur verið samningur milli Heklu og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 50 nýjum Skoda Octavia og Skoda Yeti bifreiðum sem verða afhentar á vormánuðum en bílaleigan stefnir að því að vera búin að endurnýja allan bílaflota sinn haustið 2011. Von er á enn frekari samningum um tugi bíla til viðbótar, samkvæmt fréttatilkynningu.
Nýverið var greint frá því í fréttatilkynningu að Hertz hefði keypt Toyota bifreiðar af Toyota á Íslandi.
Eigendur Hertz eru: Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz, Sigurður Berndsen, fjármálastjóri Hertz, Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri Hertz, og Sigfús R. Sigfússon.
„Það er mjög ánægjulegt að eiga þessi viðskipti við Heku og við eigum eftir að ganga frá fleiri bílakaupasamningum,“ segir Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri Hertz í fréttatilkynningu. „Við ætlum að vera búnir að endurnýja allan bílaflota okkar næsta haust og bæði Skoda Octavia og Yeti-jepplingurinn falla einstaklega vel að þeim áformum, enda öruggir, traustir og hagkvæmir bílar,“ segir hann ennfremur í tilkynningunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















