Viðskipti
| mbl
| 18.3.2010
| 9:56
Kaupþing setur eignir í sölu
Svæði við Noho torg í miðborg Lundúna, sem Kaupþing lánaði Candy-bræðrum fyrir kaupum á árið 2006, er nú til sölu. Samkvæmt framkvæmdavefnum Building.co.uk. er Kaupþing að selja svæðið til hæstbjóðanda en Candy-bræður keyptu það á 175 milljónir punda, 33,7 milljarða króna.
Stjórnarformaður Berkeley Group, Tony Pidgley, segir í samtali við Building vefinn að hann hafi skoðað svæðið en ekki komi til greina að greiða svo háar fjárhæðir fyrir það - fjárhæðir sem minni á símanúmer.
Hann segir eðlilegt verð 50-70 milljónir punda, 9,6-13,5 milljarðar króna. Hins vegar vilji Kaupþing fá 125 milljónir punda fyrir svæðið. Telja menn það óraunhæft þar sem eignin hafi einungis verið metin á 70 milljónir punda fyrir ári síðan. Á sínum tíma stóð til að Candy-bræður, með stuðningi Kaupþings, myndi byggja yfir 200 lúxusíbúðir á svæðinu. Er þetta ekki eina fasteignaævintýri Kaupþings með Candy-bræðrum því stutt er síðan að svæði í Hollywood sem Kaupþing átti með bræðrunum var selt á uppboði. Hér er hægt að lesa meira um svæðið
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















