Óvissa um sölu Exista-fyrirtækja
Viðmælendur Morgunblaðsins úr hópi kröfuhafa Exista segja að ekkert hafi verið ákveðið ennþá um meðferð þessara eigna, en Exista er í greiðslustöðvun.
Hefur félagið ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta og er því í raun ekkert sem stendur í vegi fyrir því að áðurnefnd félög verði áfram undir hatti Exista, svo lengi sem það er í samræmi við óskir kröfuhafanna.
Eins og áður segir hefur ekkert verið formlega ákveðið um sölu félaganna, en skiptar skoðanir eru um tímasetningu. Stærstu kröfuhafarnir virðast opnir fyrir því að halda félögunum í rekstri jafnvel í nokkur ár í þeirri von að hærra verð fáist með þeim hætti fyrir þau þegar að sölu kemur. Fyrirtækin séu í ágætum rekstri og við núverandi stöðu á markaði myndi ekki fást viðunandi verð fyrir þau.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.



















