Viðskipti
| mbl
| 18.3.2010
| 12:04
| Uppfært
12:19
Staðfesta kaup á Ratiopharm
Ísraelska lyfjafyrirtækið Teva hefur staðfest að félagið sé að kaupa þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Er samningurinn metinn á 3,625 milljarða evra, 625 milljarða íslenskra króna. Actavis og bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer gerðu einnig tilboð í þýska félagið. Hlutabréf Teva hafa hækkað um tæp 5% í dag vegna þessa.
Ratiopharm er annað stærsta samheitalyfjafyrirtæki Þýskalands og það sjötta stærsta í heimi.
Í fréttatilkynningu frá Teva kemur fram að félagið gerir ráð fyrir að kaupunum verði lokið fyrir árslok 2010. Sameiningin muni þýða sparnað upp á 400 milljónir dala á innan við þremur árum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















