Viðskipti
| mbl
| 19.3.2010
| 16:27
4,1 milljarðs tap hjá Eyri
Reiknað tap fjárfestingarfélagsins Eyris Invest var 24 milljónir evra á árinu 2009, sem sagt er stafa fyrst og fremst af niðurfærslu á bókfærðu verði hlutabréfa Eyris í Marel og Össuri vegna hlutafjárútboða félaganna á lægra gengi en raunvirði.
Fram kemur í tilkynningu, að eigið fé Eyris Invest í árslok 2009 var 153,5 milljónir evra, 27,6milljarðar króna og eiginfjárhlutfall er 38%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















