Viðskipti
| mbl
| 19.3.2010
| 12:10
51 kaupsamningi þinglýst
Alls var 51 kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 12. mars til og með 18. mars 2010. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.353 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,5 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 4 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 211 milljónir króna og meðalupphæð á samning 35,2 milljónir króna, samkvæmt vef Fasteignaskrár Íslands.
Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 34 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,8 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 5 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 155 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,8 milljónir króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















