Álandsbankinn ánægður með kaupin á Kaupþingi
Aðstoðarforstjóri Álandsbankans segir, að þar á bæ séu menn afar ánægðir með kaupin á rekstri Kaupþings í Svíþjóð á síðasta ári. Hafi viðskiptavinum fjölgað og einnig hafi verðmæti bankans aukist. Álandsbankinn lagði fram nærri 100 milljarða króna kröfur í þrotabú Kaupþings banka.
Álandsbanki keypti rekstur Kaupþings í Svíþjóð í mars í fyrra fyrir 388 milljónir sænskra króna í reiðufé, jafnvirði 6,9 milljarða á núverandi gengi. Kröfur Álandsbanka í þrotabú Kaupþings vöktu athygli sænskra fjölmiða en Peter Wiklöf, aðstoðarforstjóri bankans, segir við vefinn realtid.se, að kröfurnar séu eingöngu vegna þess að bankinn vilji gæta þeirra trygginga, sem hann hafi fengið við kaupin á Kaupthing Bank Sverige. „Við eigum ekki í neinum deilum við seljandann," segir hann.



















