Viðskipti
| AFP
| 19.3.2010
| 8:45
ANA sendir frá sér afkomuviðvörun
ap
Japanska flugfélagið All Nippon Airways (ANA) sendi frá sér afkomuviðvörun í dag þar sem fram kemur að tap félagsins á rekstrarárinu sem lýkur nú í lok mars sé meira heldur en fyrri spár bentu til.
Kemur fram að tapið næmi um 65 milljörðum jena, 91 milljarður króna en fyrri spá hljóðaði upp á 28 milljarða jena tap. Skýrist tapið einkum af lítilli eftirspurn eftir flugi, bæði innanlands sem millilanda.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















