Hafði hagsmuni af stöðugri krónu
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbanka. mbl.is
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir Landsbankann haft hagsmuni af stöðugu gengi krónunnar.
„Landsbankinn var með stærsta safn útlána íslenskra banka á heimamarkaði og hafði mikla hagsmuni af efnahagslegum stöðugleika og þar með stöðugri krónu,“ segir Halldór. Hann segir að Landsbankinn hafi beint miklum gjaldeyri inn á innlendan markað á árunum 2007 og 2008, einn íslenskra banka.
Mikil umræða hefur átt sér stað á undanförnum dögum um stöðutöku íslensku bankanna gegn krónunni, í kjölfar þess að Kastljós Ríkissjónvarpsins fjallaði um skýrslu Bjarna Kristjánssonar, sem er fyrrverandi gjaldeyrismiðlari Landsbankans. Í skýrslu Bjarna kom fram að skortstaða bankanna gagnvart íslensku krónunni hafi numið mörg hundruð milljörðum króna haustið 2008.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.



















