Viðskipti
| Morgunblaðið
| 19.3.2010
| 5:30
| Uppfært
5:54
Hampiðjan selur til Færeyja fyrir tugi milljóna
Öll nýjustu skipin í færeyska fiskveiðiflotanum eru nú búin Dynex-togtaugum frá Hampiðjunni.
Á dögunum keypti P/F Varðin, sem gerir út Þránd í Götu sem er með öflugustu togskipum heims, Dynex-togtaugarnar og er það því komið í hóp með Finni Fríða og Norðborginni sem einnig nota slíkar togtaugar.
Ásamt þessu fjárfesti útgerð Þrándar í Götu einnig í Gloríu-trolli frá Hampiðjunni og nýjum síldarpoka. Að sögn Haraldar Ágústssonar, sölu- og markaðsstjóra Hampiðjunnar hér á landi, eru þetta tugmilljóna króna viðskipti.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















