Viðskipti
| Morgunblaðið
| 19.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:02
Ráðist á Madoff
Bernard Madoff, sem afplánar nú 150 ára fangelsisdóm í Norður-Karólínu fyrir fjársvik, varð fyrir líkamsárás í fangelsinu í desember, að því er Wall Street Journal hefur eftir þremur heimildarmönnum innan fangelsisins.
Madoff var í kjölfarið færður á sjúkrahús fangelsisins, þar sem gert var að sárum hans.
Forsvarsmenn fangelsisins, sem er í Butner í Norður-Karólínuríki, neituðu því eindregið á sínum tíma að ráðist hefði verið á Madoff og sögðu hann þjást af svima og háþrýstingi.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















