Viðskipti
| mbl
| 19.3.2010
| 8:37
SAS tekur milljarða lán
AP
Norræna flugfélagið SAS er að gefa út skuldabréf til fimm ára sem hljóða samtals upp á 1,42 milljarða sænskra króna, um 25 milljarða íslenskra króna, að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem sænskir fjölmiðlar vísa til.
Um er að ræða svonefnd breytileg skuldabréf en hægt er að breyta skuldinni í hlutafé. Eru skuldabréfin einkum ætluð evrópskum fagfjárfestum.
SAS áformar einnig hlutafjáraukningu sem á að skila félaginu 5 milljörðum sænskra króna. Er sú hlutafjáraukning studd af norrænu ríkisstjórnunum sem eiga stóran hlut í SAS.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















