Warren Buffett í rokkmyndbandi
Bandaríski kaupsýslumaðurinn Warren Buffett, þriðji ríkasti maður heims, bregður stundum á leik ef svo ber undir. Nú fer myndskeið þar sem Buffett sést í hlutverki rokksöngvara sigurför um netið.
Starfsmenn tryggingafélagsins Geico, sem er í eigu fjárfestingarfélags Buffets, hafa sett saman tónlistarmyndskeið þar sem þau syngja lag um bílatryggingar. Lukkudýr fyrirtækisins, eðla, leikur hlutverk gítarleikarans Slash í sveitinni Guns N' Roses en Buffett, sem er 79 ára, stelur senunni í hlutverki söngvarans Axl Rose, með hárkollu, ennisband, húðflúr og í skotapilsi.
Á fréttavef tímaritsins Time er haft eftir Phil Ovuka, talsmanni Geico, að starfsmennirnir hafi ekki reiknað með að Buffett myndi taka þátt í þessu gamni en hann var til í slaginn.
Starfsmenn Geico hafa oft áður sett saman myndskeið fyrir árshátíð fyrirtækisins og Buffett hefur verið með undanfarin fjögur ár, meðal annars í hlutverki plötusnúðs.



















