Yfirtökutilboði Sports Direct hafnað
Útivistarverslunarkeðjan Blacks Leisure Group hefur hafnað yfirtökutilboði frá Sports Direct International. Sports Direct á 28,5% hlut í Blacks en hluturinn var keyptur af þrotabúi Kaupthing Singer & Friedlander.
Tilboð Sports Direct hljóðaði upp á 62 pens á hlut sem er 3,33% hærra verð en lokaverð Blacks kvöldið áður en tilboðið barst, að því er fram kemur í tilkynningu frá Blacks.
Hlutabréf Blacks hækkuðu um 15% í Kauphöllinni í Lundúnum þann 2. mars sl. þegar tilkynnt var um að Sports Direct kynni að gera yfirtökutilboð í félagið. Segir í tilkynningu Blacks að ákveðin skilyrði séu sett fyrir yfirtökunni og að stjórn félagsins telji að ekki sé hægt að uppfylla öll þau skilyrði.
Hlutabréf Blacks Leisure hafa hækkað um 0,5% í morgun og voru síðustu viðskipti með félagið á genginu 61,5 pens á hlut. Það þýðir að markaðsvirði félagsins eru rúmir 5 milljarðar króna.



















