Viðskipti
| Morgunblaðið
| 22.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:19
Samþykkt að auka hlutafé Atlantic Petroleum mikið
Aðalfundur færeyska olíuleitar- og framleiðslufyrirtækisins Atlantic Petroleum samþykkti um helgina að auka hlutafé félagsins um allt að 200 milljónir danskra króna að nafnvirði.
Heimild stjórnar til hlutafjáraukningar gildir til ársins 2014, en um er að ræða ríflega 76% aukningu. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að möguleiki er að nota nýtt hlutafé til að skuldajafna við lánardrottna.
Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















