Viðskipti
| AFP
| 22.3.2010
| 6:39
Starfsmenn Rio Tinto munu játa sekt
Framkvæmdastjóri Rio Tinto í Sjanghaí, Stern Hu, og þrír samstarfsmenn hans munu játa að hafa þegið mútur fyrir dómi í dag, samkvæmt Dow Jones fréttaveitunni. Hefur fréttaveitan þetta eftir verjanda fjórmenninganna en þeir eru ákærðir fyrir iðnaðarnjósnir og að hafa þegið mútur. Réttarhöld yfir þeim hófust í Kína í dag. Hu er með ástralskan ríkisborgararétt en hinir þrír eru kínverskir.
Að sögn verjandans, Tao Wuping, er Hu ákærður fyrir að hafa þegið sex milljónir júana í mútur, 112 milljónir króna, í mútur en vinnufélagi hans, Liu Caikui, þrjár milljónir júana.
Málið hefur spillt samskiptum Kína og Ástralíu verulega að undanförnu og hefur meðal annars forsætisráðherra Ástralíu, Kevin Rudd, varað Kínverja við afleiðingunum.
Rio Tinto er móðurfélag álversins í Straumsvík.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















