Viðskipti
| AFP
| 23.3.2010
| 14:54
Enn dregur úr fasteignasölu vestanhafs
Sala á íbúðum dróst saman í Bandaríkjunum í febrúar, þriðja mánuðinn í röð. Þrátt fyrir samdrátt þá seldust heldur fleiri íbúðir í mánuðinum en spáð hafði verið af sérfræðingum. Er talið að slæmt veður í febrúar hafi dregið úr kaupáhuga vestanhafs.
En þrátt fyrir samdrátt milli mánaða seldust 7% fleiri íbúðir í febrúar nú heldur en í sama mánuði í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















