Viðskipti
| AFP
| 23.3.2010
| 21:13
Hráolía hækkar í verði
Hráolía hækkaði í verði í dag en spákaupmenn gera fastlega ráð fyrir því að hráolíubirgðir hafi aukist en eldsneytisbirgðir minnkað í síðustu viku í Bandaríkjunum. Þessar væntingar eru svipaðar þeim sem heyrst hafa nánast í hverri viku í um það bil heilt ár. Að efnahagsbatinn sé sýnilegur vestanhafs.
Verð á hráolíu hækkaði um 31 sent og er 81,91 dalur tunnan á Nymex markaðnum í New York. Í Lundúnum hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 16 sent í 80,70 dali tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















