Lokað réttarhald í mútumáli
Réttarhöld yfir fjórum starfsmönnum ástralska námafyrirtækisins Rio Tinto, móðurfélags álversins í Straumsvík, fara fram fyrir luktum dyrum í Kína í dag. Í gær játaði yfirmaður Rio Tinto í Sjanghaí að hafa þegið mútur en hann er ásamt þremur vinnufélögum sínum ákærður fyrir mútuþægni og iðnaðarnjósnir.
Réttarhöldin yfir Stern Hu, framkvæmdastjóra Rio Tinto í Sjanghaí, og félögum hans hófust í gær. Þeir voru handteknir fyrir átta mánuðum og hafa verið í varðhaldi frá þeim tíma í Sjanghaí. Hu er ástralskur og hefur málið haft slæm áhrif á stjórnmálasamskipti ríkjanna tveggja. Hafa áströlsk stjórnvöld mótmælt því að réttarhaldið sé lokað og óttast að mennirnir fái ekki réttláta meðferð.
Mennirnir voru handteknir skömmu eftir að Rio Tinto hafnaði hlutafjáraukningu frá stærsta hluthafa félagsins, Chinalco, sem er í eigu kínverska ríkisins.
Forsætisráðherra Ástralíu, Kevin Rudd, sagði í gær að hann myndi fylgjast náið með réttarhöldunum og niðurstöðu þeirra.



















