Icelandair Group endurskipulögð
Í endurskipulagningunni er meðal annars gert ráð fyrir aðkomu annarra lánveitenda auk leigusala flugvéla sem dótturfélög Icelandair Group nýta í rekstri sínum.
Leita þarf eftir samþykki
hlutahafafundar samstæðunnar fyrir ákveðnum þáttum
endurskipulagningarinnar, auk endanlegs samþykkis lánveitenda. Engar
skuldir samstæðunnar verða afskrifaðar.
Daglegur
rekstur hefur gengið vel
Daglegur rekstur samstæðunnar hefur gengið vel undanfarin misseri, en há fjármagnsgjöld og miklar skammtímaskuldir hafa haft neikvæð áhrif á stöðu félagsins.
Stjórnendur
Icelandair Group hafa undanfarna mánuði unnið náið með lánveitendum að
fjárhagslegri endurskipulagningu til að treysta grunn félagsins.
Icelandair Group hefur auk þess haft sér til ráðgjafar erlendan
banka
með sérþekkingu á sviði flugrekstrar.
Skuldum upp á 4,8
milljarða breytt í hlutafé
Ef endurskipulagningin gengur eftir er gert ráð fyrir að innlendir lánveitendur breyti skuldum að fjárhæð um 4,8 milljörðum króna í hlutafé. Auk þess verða skuldir að fjárhæð 7,7 milljarðar króna ásamt jafnvirði eigna færðar í sérstakt eignarhaldsfélag sem verður í eigu innlendra lánveitenda.
Eftir í
Icelandair Group verða þær eignir sem stjórn samstæðunnar hefur
skilgreint sem kjarnastarfsemi: Icelandair, Flugfélag Íslands, Iceland
Travel (Vita), Icelandair Cargo, Icelandair Hotels, Icelandair Ground
Services, Loftleiðir-Icelandic og Fjárvakur auk lettneska
leiguflugfélagsins SmartLynx, sem stefnt er að fari út úr samstæðunni á
árinu.
Hlutafjárútboð á árinu
Að lokum er
gert ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að
leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum á árinu sem fara
munu fram í tveimur hlutum. Fyrri hluti verður lokað útboð meðal
afmarkaðs hóps fagfjárfesta. Í framhaldi af því er stefnt að almennu
hlutafjárútboði en það er vilji Icelandair Group, Íslandsbanka og
Glitnis að tryggja aðkomu breiðs hóps
fjárfesta, jafnt fagfjárfesta
og almennra fjárfesta.
Icelandair Group hefur falið
fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að hafa umsjón með hlutafjárútboðunum.
Heildarveltan
rúmir 80 milljarðar í fyrra
Samkvæmt bráðabirgðarekstrarreikningi nam heildarvelta félagsins á árinu 2009 80,3 milljörðum króna af áframhaldandi starfsemi. Þar af nam velta kjarnastarfsemi 75,2 milljörðum króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 8,1 milljarði króna og af kjarnastarfsemi 7,3 milljörðum króna. Með fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins verður áætluð velta ársins 2010 78,2 milljarðar króna af kjarnastarfsemi og áætluð EBITDA 7,6 milljarðar króna.
Vegna endurskipulagningarinnar hefur Icelandair Group ákveðið að fresta birtingu ársreiknings 2010 þar til í 15. viku og er áætlað að aðalfundur félagsins verði haldinn í maí.


















