Eigið fé Stoða 23,5 milljarðar í árslok
Bókfært verðmæti eigna Stoða, áður FL Group, um áramótin var 33,5 milljarðar króna og skuldir félagsins, sem allar eru til langs tíma, námu 10 milljörðum króna. Eigið fé Stoða í árslok 2009 nam því 23,5 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall félagsins var 70%. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í dag.
Fjárhagslegri endurskipulagningu Stoða lauk um mitt síðasta ár, samhliða nauðasamningum við kröfuhafa sem í kjölfarið eignuðust allt hlutafé í Stoðum.
Í ársreikningi fyrir árið 2009 er bókfærð tekjufærsla vegna eftirgefinna skulda í tengslum við nauðasamninga, og nemur bókfærður hagnaður á árinu 2009 því 212 milljörðum króna. Starfsemi Stoða var með reglubundnum hætti á seinni hluta ársins og nam hagnaður þess tímabils 1.209 milljónum króna, samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu.
Samanlagt tap móður- og dótturfélaga Stoða á síðasta ári var alls 350,6
milljarðar króna árið 2008.
Helstu eignir Stoða eru 99,9% hlutur í Tryggingamiðstöðinni (TM) og 40% hlutur í evrópska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco, en í gær var tilkynnt um kaup fjárfestingafélagsins 3i á 20% hlut í Refresco fyrir 84 milljónir evra. Meðal annarra eigna Stoða má nefna eignarhluti í Royal Unibrew, Nordicom og Inspired Gaming.
Hluthafar Stoða eru nú 109 talsins. Þrír hluthafar, Glitnir, NBI og Arion banki, fara með yfir 10% af atkvæðamagni hlutabréfa.



















