Afskráning Bakkavarar samþykkt
Hluthafar í Bakkavör Group samþykktu á hluthafafundi í gær að óska eftir afskráningu félagsins Kauphöllinni. Að fenginni heimild til afskráningar breytist félagið í einkahlutafélag. Bræðurnir, Ágúst Guðmundsson forstjóri Bakkavarar og Lýður stjórnarformaður félagsins, fóru yfir stöðu félagsins á hluthafafundinum en kröfuhafar samþykktu nýverið nauðasamninga Bakkavarar.
Ágúst og Lýður Guðmundssynir verða, samkvæmt nauðasamningnum áfram við stjórnvölinn í gegnum B Food Invest. Þeir halda 34% atkvæðisrétti en hafa ekki fjárhagslegan ávinning af hlutnum.Verði skuldir að fullu greiddar þann 30. júní 2014 og C-hlutir innleystir, eiga Ágúst og Lýður Guðmundssynir rétt á að skrá sig fyrir og kaupa á nafnvirði allt að 25% hlut í félaginu í hlutfalli við greiðslu skulda.



















