Á góðri siglingu

Halldór Gunnar Eyjólfsson segir að mikið sé lagt upp úr …
Halldór Gunnar Eyjólfsson segir að mikið sé lagt upp úr því hjá 66°Norður að auka fjölbreytni. Ragnar Axelsson

Góður gangur er í rekstri 66°Norður um þessar mundir og hefur umræðan erlendis um Ísland og Icesave síður en svo haft neikvæð áhrif á sölu hjá fyrirtækinu.

Halldór Gunnar Eyjólfsson, forstjóri 66°Norður, segir að veltan í fyrra hafi verið tæpir þrír milljarðar króna, en til samanburðar hafi hún verið um einn milljarður árið 2004.

„Það má því segja að fyrirtækið hafi vaxið um fjórðung á hverju ári á þessum tíma.“ Fyrstu tvo mánuði ársins jókst sala á Íslandi um 15 prósent samanborið við sama tíma í fyrra og þá hefur sala erlendis aukist um 50 prósent milli ára.

Undanfarnar vikur hefur 66°Norður verið að kynna vörur fyrirtækisins á stærstu erlendu vörusýningunum í Evrópu og USA og segir hann að viðbrögðin hafi verið gríðarlega góð.

Sjá nánari umfjöllun um 66°Norður í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK