Viðskipti
| mbl
| 30.3.2010
| 9:13
Hagvöxtur í Bretlandi á ný
Hagvöxtur mælist nú á ný í Bretlandi eftir langt samdráttarskeið. Jókst verg landsframleiðsla um 0,4% á fjórða ársfjórðungi síðasta árs miðað við fjórðunginn á undan.
Alls mældist samdrátturinn á síðasta ári 4,9%, samkvæmt endurskoðuðum mælingum bresku hagstofunnar, sem áður hafði áætlað að samdrátturinn hefði verið 5%. Alls dróst landsframleiðsla í Bretlandi saman í sex ársfjórðunga í röð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















