Viðskipti
| Morgunblaðið
| 30.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:16
Lækkun lánshæfis yfirvofandi
Matsfyritækið Standard & Poor's varaði við því í gær að lánshæfiseinkunn breska ríkisins myndi lækka úr hæsta flokki, tækist stjórnvöldum ekki að koma böndum á skuldavanda hins opinbera.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Gordons Browns, sem kynnt var á dögunum, er stefnt að því að minnka fjárlagahalla ríkisins um helming á næstu fjórum árum. Hinsvegar gera áætlanir stjórnvalda ráð fyrir að opinberar skuldir verði komnar í 75% af landsframleiðslu árið 2015 en hlutfallið er 54% í dag.
Samkvæmt sérfræðingum S&P stefnir hlutfall skulda hins opinbera í Bretlandi í það að verða svo hátt að ekki sé hægt að réttlæta að gefa skuldabréfum ríkissjóðs hæstu lánshæfiseinkunn, eða AAA.
Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















