Seldi Iceland inn í bankana 2008

Friðrik Tryggvason

Baugur seldi Landsbankanum og Glitni hlutabréf í Iceland í nokkrum skömmtum á árinu 2008. Fyrstu viðskiptin áttu sér stað í mars, en þá seldi Baugur 8% hlut í Iceland til Landsbankans fyrir um það bil 60 milljónir punda.

Landsbankinn var strax á þessum tíma í nokkrum vandræðum vegna Baugs, en áhætta gagnvart fyrirtækinu dansaði í kringum hið lögboðna hámark samkvæmt reglum Fjármálaeftirlitsins. Þær reglur kveða á um að áhætta gagnvart einstökum viðskiptavini megi ekki nema meira en 25% af eigin fé.

Verðið snarhækkaði skömmu síðar

Nokkrum vikum síðar seldi Baugur meira af Iceland inn í Landsbankann, í það skiptið 7,5% eignarhlut. Verðið hafði þá hækkað nokkuð, og 100 milljónir punda fengust fyrir þann hlut. Á svipuðum tíma voru síðan 7,5% seld til viðbótar til Glitnis fyrir sömu upphæð, 100 milljónir punda. Iceland tvöfaldast því nánast í verði á stuttum tíma. Þessi skyndilega verðhækkun hefur að hluta verið skýrð með nýjum fjárhagsupplýsingum sem bárust um Iceland milli viðskiptanna.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru þær 240 milljónir punda sem Baugur fékk fyrir samtals 23% hlut í Iceland notaðar til greiðslu á öðrum skuldum. Baugur fékk hins vegar kauprétt á hlutunum í Iceland sem seldir voru til bankanna tveggja. Þeir kaupréttarsamningar voru síðan veðsettir vegna annarra lána. Fram hefur komið í fréttum að skilanefnd Glitnis ráði yfir 10% hlut í Iceland, en 2,5% sem út af standa leysti Glitnir til sín vegna aðskilins veðkalls.

Keyptu yfir helming í félaginu 2008

Fram hefur komið að félagið Stytta seldi Landsbankanum 29% hlut í Iceland, sem áður var í eigu Fons, á 430 milljónir punda í ágúst 2008. Því tókst að losa tæplega 700 milljónir punda fyrir rúmlega 52% hlut í fyrirtækinu. Eftir því sem næst verður komist var nær öll fjárhæðin notað til greiðslu skulda.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK