Viðskipti
| mbl
| 6.4.2010
| 12:45
| Uppfært
13:21
Neikvæðar horfur fyrir einkunn OR og Landsvirkjunar
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur breytt horfum fyrir lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun úr stöðugum í neikvæðar líkt og fyrirtækið hefur gert varðandi einkunn íslenska ríkisins.
Einkunn OR er Ba1 hjá Moody's sem þýðir að skuldabréf fyrirtækisins eru ekki í svokölluðum fjárfestingarflokki heldur í því sem kallað er ruslflokkur.
Einkunn Landsvirkjunar er Baa3/P-3. Rökin sem Moody's færir fyrir neikvæðum horfum einkunnanna eru þau sömu og færð voru fyrir því að breyta horfum fyrir einkunn íslenska ríkisins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















