Vestia vill selja þrjú félög
Hús Parlogis við Krókháls.
Fram kemur á heimasíðu Vestia að söluferlin verði opin öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess efnis að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögumum verðbréfaviðskipti.
Parlogis sérhæfir sig í vörustjórnun fyrir heilbrigðisstofnanir, lyfjafyrirtæki og sérverslanir með heilsutengdar vörur. Félagið á sér rætur í Lyfjaverslun Íslands og Thorarensen Lyfja en dreifingarstarfsemi þessara félaga var sameinuð undir nafni Lyfjadreifingar ehf. Árið 2004 varð Lyfjadreifing sjálfstætt dótturfyrirtæki Atorku Group og var nafni félagsins breytt árið 2005 í Parlogis. Árið 2007 keypti DM ehf. öll bréf Atorku í Parlogis. Starfsmenn Parlogis eru 55 talsins.
Plastprent framleiðir plastumbúðir og plastfilmur fyrir matvælaiðnað, sjávarútveg, landbúnað, verslanir og stórfyrirtæki. Einnig býður fyrirtækið skyldar vörur til reksturs og endursölu. Í starfsemi félagsins á Íslandi starfa um 90 starfsmenn. Félagið er einnig í tengdri starfsemi í Bretlandi, Færeyjum og Litháen í gegnum dótturfyrirtæki sín Gerove, Fispak, Virenda, og Plastprent Foröyar. Starfsmenn Plastprents erlendis eru um 120 talsins.
Cimbric Fiskekonserves er í 65% eigu Eignarhaldsfélagsins Vestia eftir yfirtöku á eignarhlut ADB Holding Vogn A/S. Eigandi 35% eignarhlutsins er Larsen Danish Seafood A/S. Cimbric var stofnað árið 1964 og er gamalgróið þekkt nafn í rækjuvinnslu í Danmörku. Meginstarfsemi Cimbric felst í pökkun á rækju og öðrum skelfisk sem er dreift til smásöluaðila, stóreldhúsa og annarra notenda. Fyrirtækið er með starfsemi í Vogn á Jótlandi og Frederikshavn. Félagið dreifir vörum sínum að langmestu leyti til aðila innan Danmerkur, en útflutningur er þó einnig til m.a. Ítalíu og Þýskalands. 38 manns starfa hjá fyrirtækinu.



















