Viðskipti
| mbl
| 9.4.2010
| 15:01
Fitch lækkar lánshæfiseinkunn Grikklands
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur lækkað lánshæfiseinkunn gríska ríkisins og eru horfur neikvæðar að mati fyrirtækisins. Lækkar einkuninn úr BBB+ í BBB-, bæði fyrir innlendar og erlendar langtímaskuldbindingar.
Fitch segir, að lækkunin endurspegli þau vandamál, sem gríska ríkið eigi við að glíma vegna mikilla opinberra skulda og hækkandi ávöxtunarkröfu og skuldatryggingaálags á grísk skuldabréf.
Skuldatryggingaálagið hefur hækkað verulega síðustu daga vegna vangaveltna um að Grikkland kunni að þurfa að leita á náðir Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















