Viðskipti
| mbl
| 13.4.2010
| 15:05
Áframhaldandi tap hjá Alcoa
Bandaríska álfyrirtækið Alcoa, sem rekur meðal annars álverið í Reyðarfirði, tapaði 201 milljón dala, rúmlega 25 milljörðum króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs en tap á sama tíma á síðasta ári nam 497 milljónum dala.
Alcoa ef jafnan fyrsta fyrirtækið í Dow Jones hlutabréfavísitölunni, sem birtir árshlutauppgjör.
Gengi bréfa Alcoa hækkaði um 1,25% í gærkvöldi eftir að uppgjörið var birt en hefur í dag lækkað um 2,5%. Það eru einkum sölutekjur Alcoa sem vekja vonbrigðum hjá fjárfestum en þær námu 4,89 milljörðum dala; sérfræðingar höfðu spáð 5,23 milljarða tekjum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















