Viðskipti
| mbl
| 13.4.2010
| 21:33
Hagnaður Intel fjórfaldaðist
Hagnaður bandaríska örgjörvaframleiðandans Intel nam 2,4 milljörðum dala á fyrsta fjórðungi ársins og jókst um 288% frá sama tímabili á síðasta ári. Tekjur jukust um 44% og námu 10,3 milljörðum dala.
Bæði tekjur og hagnaður voru umfram væntingar sérfræðinga. Paul Otellini, forstjóri Intel, sagði að þetta væri besti ársfjórðungur í sögu fyrirtækisins og útlitið væri bjart.
Gengi hlutabréfa Intel hækkaði um 2,68% í rafrænum viðskiptum eftir að kauphöllinni á Wall Street var lokað í kvöld.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















