Viðskipti
| AFP
| 15.4.2010
| 20:17
Hagnaður Google eykst
Hagnaður bandaríska netfyrirtækisins Google jókst um 37,4% á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við sama ársfjórðung árið 2009 og nam 1,96 milljarði dala, jafnvirði 248 milljarða króna.
Tekjur Google jukust um 23% og námu 6,8 milljörðum dala á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Patrick Pichette, forstjóri, sagði að tekjur og hagnaður hefðu aukist á öllum markaðssvæðum Google. Fyrirtækið muni áfram fjárfesta mikið í nýsköpun til að skapa jarðveg fyrir frekari vöxt og einnig til að styrkja vefinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















