Viðskipti
| Morgunblaðið
| 16.4.2010
| 5:30
| Uppfært
6:26
Gylfi tjáir sig ekki
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, kýs að tjá sig ekki um mál forstjóra Fjármálaeftirlitsins, Gunnars Andersen, sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Þar kom fram að í skýrslu rannsóknarnefndar stæði að Gunnar hefði árið 2001, þegar hann var starfsmaður Landsbankans, fengið tölvupóst þar sem lýst var fléttu sem virtist vera ætlað að fela fjármögnun Kaupþings á kaupum á eigin hlutabréfum.
Fólst hún í því að Kaupþing lánaði félaginu LB Holding, sem Gunnar var stjórnarmaður í, fyrir bréfunum og gerðu félögin samning um að LB hefði rétt til að selja Kaupþingi bréfin seinna.
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















