Viðskipti
| mbl
| 19.4.2010
| 3:12
Toyota fellst á að greiða sekt
Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur fallist á að greiða nærri 16,4 milljónir dala, jafnvirði um 2 milljarða króna, í sekt í Bandaríkjunum fyrir að leyna vandamálum með bensíngjöf í bílum. Toyota innkallaði nýlega yfir 8 milljónir bíla vegna galla í bensíngjöf.
Þetta er hæsta sekt, sem eitt fyrirtæki hefur greitt til bandarísku umferðareftriitsstofnunarinnar.
AFP fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismanni, að með því að greiða sektina viðurkenni Toyota að hafa leynt öryggisgallanum og þannig brotið bandarísk lög.
Bandaríkjastjórn sagði, að Toyota hefði dregið í minnsta kosti fjórða mánuði að tilkynna, að bensíngjöfin í bílum fyrirtækisins ætti það til að festast í botni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















