Toyota hrapar niður lista helstu fyrirtækja
Fall japanska bílaframleiðandans Toyota Motor hefur verið mikið undanfarna mánuði vegna innkallana milljóna bíla af völdum ýmissa galla, sem komið hafa í ljós. Á nýjum lista bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes yfir helstu fyrirtæki heims er Toyota í 360. sæti en var í 3. sæti á síðasta ári.
Fyrir ofan Toyota á listanum eru nú bílaframleiðendur á borð við Ford, Honda og Hyundai en bandarísku bílaframleiðendurnir General Motors og Chrysler, sem urðu í raun gjaldþrota á síðasta ári, komast ekki inn á listann yfir 2000 bestu stórfyrirtæki heims. Listinn byggist á sölutekjum, hagnaði, eignum og markaðsvirði.
Toyota var árið 2008 stærsti bílaframleiðandi heims og velti þá General Motors úr sessi. En á síðasta ári þurfti fyrirtækið að innkalla um 10 milljónir bíla um allan heim vegna vandamála í hemlum og bensíngjöf en 58 dauðsföll í Bandaríkjunum hafa verið rakin til þessara galla.
Í morgun varð Toyota fyrir enn einu áfallinu þegar matsfyrirtækið Moody´s lækkaði lánshæfiseinkunn fyrirtækisins vegna óvissu um gæði framleiðslu þess. Fyrr í vikunni féllst Toyota á að greiða 16,4 milljóna dala stjórnvaldssekt í Bandaríkjunum fyrir að fela hugsanlega galla í bílum fyrir bandarískum stjórnvöldum.
Þrátt fyrir fjármálakreppuna eru bankar áberandi á lista Forbes og má þar alls finna 308 slíka, aðallega vegna þess hve eignir þeirra eru miklar. Bandaríski fjárfestingarbankinn JP Morgan Chase er í 1. sæti á listanum en stórfyrirtækið General Motors fór niður í 2. sætið.
Forbes segir, að tekjur fyrirtækjanna 2000 hafi numið 30 billjónum dala á síðasta ári og hagnaður þeirra 1,4 billjónum. Eignirnar nema 124 billjónum dala og markaðsverðmætið er 31 billjón dala og hefur aukist um 61% frá árinu á undan.




















